Dordingull Podcast - itunes



Alla fimmtudaga frá klukkan 23:00

Útgáfuár: Eldra < 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 > Nýtt


Samtals: 946 plötudómar á síðum harðkjarna!

Varstu búin(n) að lesa þennan plötudóm:
Ýmsir - Area 51

Ýmsir - Area 51
Victory Records 1998

Þungur, melódískur, brútal, up bít, rokkað, illska og vinalegheit allt í einum pakka. Frank karlinn Abel ræðst ekki á hjallann þar sem hann er lægstur. Hann er hérna búinn að safna saman 53. lögum úr öllum áttum sem eiga það sameiginlegt að sparka rassa
...[Lesið nánar]


Einkunnagjöf - Review Guide



Jasta - jasta
Jasta - jasta
[Century Media] 2011


Þrátt fyrir ungan aldur hefur söngvarinn Jamey Jasta verið nokkur áberandi tónlistarbransanum vestanhafs síðastliðinn áratug eða svo. Þekktastur er hann fyrir sína vinnu með hljómsveitinni Hatebreed, en síðastliðin ár hefur hann einnig verið í verkefni að nafni Kingdom of Sorrow (með söngvara og gítarleikara hljómsveitarinnar Crowbar). Þrátt fyrir að sköpunarferlið hafi ekki verið að halda honum aftur síðastliðin ár hefur honum fundist að öll hans lög passi ekki í þær hljómsveitir sem hann er hvað þekktastur fyrir. Því ákvað kappinn að taka það efni saman og gefa það út undir sínu eigin nafni. Jasta vildi ekki standa einn á bakvið þetta og ákvað því að smala saman vinum og kunningjum og setja upp heljarinnar tónlistarveislu.

Tónlistin hljómar oft á tíðum eins og efnið sem hann er hvað þekktastur fyrir, þar sem rödd hans er nokkuð einkennandi. Einfaldur og taktfastur ryðmi Hatebreed spilaður af þungarokkurum í bland við mun meiri melódíu. Það er semsagt mun meiri vídd í þessu efni þar sem hann hefur ákveðið að láta allt flakka, engar takmarkanir. Hann virðist líka leyfa þungarokkaranum (lesist "ekki hardcore") í sér að dafna á plötunni.

Það er fullt af góðum rokk lögum þarna sem heilla unga sem aldna, en það sem heillar mig eru lög á borð við "Morn the illusion" og "Enslaved, Dead Or Depraved" (sem hann syngur með Randy Blythe úr Lamb of God). Á heildina minnir þetta mig svolítið á Shadows Fall og slíkt bönd nema með smá Hatebreed viðsnúningi. Þetta er langt frá því að vera slæmt plata, en þetta er samt einnig langt frá því að vera eitthvað sem ég get haldið upp á, hvað þá eitthvað sem ég sækist eftir að spila. Við það má kannski bæta að með Ipod á shuffle myndi ég ekki sleppa neinu einasta lagi sem finna má á þessarri plötu.

(3/6)

Valli

Share on Myspace



[Plötudómar]