Dordingull Podcast - itunes



Alla fimmtudaga frá klukkan 23:00

Útgáfuár: Eldra < 1990 1991 1992 1993 1994 1995 1996 1997 1998 1999 2000 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2009 2010 2011 2012 2013 > Nýtt


Samtals: 946 plötudómar á síðum harðkjarna!

Varstu búin(n) að lesa þennan plötudóm:
Phantomsmasher - Phantomsmasher

Phantomsmasher - Phantomsmasher
Ipecac 2002

Margt þeirra sem ég hef rætt við um tónlist raflistamanna eins og Aphex Twin og Squarepusher, hafa haft á orði að alltaf af og til vakni spurning eins og hvort að ekki sé allt í lagi. Tónlist þeirra á sér alltaf einhver andartök sem eru skrítin, brjálæðisleg
...[Lesið nánar]


Einkunnagjöf - Review Guide



Caliban - Coverfield EP
Caliban - Coverfield EP
[Century Media] 2011


Þrátt fyrir að vera nokkuð áhættusamt virðist það vera nokkuð vinsælt meðal þungarokkssveita að senda frá sér samansafn af ábreiðum (coverlögum) á einni skífu. Nokkrum sveitum hefur tekist þetta áberandi vel á meðan öðrum hefur ekki tekist þetta að neinu leiti. Caliban hefur ákveðið að reyna fyrirsér í þessum bransa en taka það með meiri varkárni en aðrar sveitir því hér á ferð er aðeins um fjögra laga skífu að ræða.

Platan hefust á laginu My Girlfriend's Girlfriend eftir eina af mínum uppáhalds sveitum, Type O Negative. Caliban taka lagið á sinn máta, en ná að sjálfsögðu ekki þeirri snilld sem Pétur og félagar náðu að gefa laginu. Aftur á móti kann ég að meta tilraunina og gef þeim ágætis einkun fyrir þessa tilraun. Þar á eftir er komið að samlöndum Caliban manna, Rammstein, en lagið sem Caliban taka með sveitinni er Sonne.

Þessi útgáfa er aftur á móti mun betur framkvæmd. Sveitin fellur að vísu einnig í þá gryfj velja lag með söngvara sem keyrir lagið áfram, á meðan söngvari Caliban sýnir litla tilburði við það og öskrar bara að bestu getu... engu að síður ágæt skemmtun. Með laginu Blinded by Fear, eftir At the Gates, kveður við annan tón, því söngvari Caliban er að minnstakosti með meiri raddbreytingar og fjöldbreytileika. Þessarri stuttu skífu líkur svo á allt öðrum nótum með laginu Helter Skelter eftir Bítlana. Þar er afskræming sveitarinnar í hámarki þar sem hún gerir einhverskonar tilraunir, hver hefði tildæmis búist við heljarinnar breakdown kafla í Helter Skelter?

Þegar allt kemur til alls hafði ég gaman af þessu og get lítið sett út á þetta annað en þeir hefðu nú getað gefið út veglegri pakka með fleiri lögum fyrir nörda eins og mig.

(4/6)

Valli

Share on Myspace



[Plötudómar]