Eistnaflug 2013 11. júlí 2013 (fimmtudagur) Eistnaflug 2013 verður haldið í níunda sinn í sumar.
Hátíðin verður dagana 11.-13. Júlí í Egilsbúð... [meira]
Eistnaflug 2013 12. júlí 2013 (föstudagur) Eistnaflug 2013 verður haldið í níunda sinn í sumar.
Hátíðin verður dagana 11.-13. Júlí í Egilsbúð... [meira]
Witherspoon Söngvari Sevendust, Lajon Witherspoon, var einu sinni meðlimur R og B (Vælu) hljómsveitarinnar Body & Soul
Mynd dagsins
Deprecated: Assigning the return value of new by reference is deprecated in /home/dordingu/public_html/hardkjarni/photo/modules/core/classes/GalleryStorage.class on line 290 Welcome to the Gallery Upgrader
You tried to run the upgrade process but a valid config.php is missing.
If you've lost your config.php file when replacing the Gallery 2 files in the preparation for this upgrade, please restore it and try again.
If you actually want to run the Gallery 2 installer, please follow the link below.
If you want to upgrade from Gallery 1, you first need to install Gallery 2 and then use the import module to import your data from Gallery 1. Please follow the link below to install Gallery 2.
11. apríl 2013 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Greinar - Plötudómar Á síðustu dögum er búið að bætast við í greinasafnið (finnst undir "SAFNIÐ" takkanum hér að ofan) og einnig plötudómum við eftirfarandi plötur:
C.R.O.W.N - Psychurgy
Zozobra - Savage Masters
Suicidal Tendencies - 13
Killswitch Engage - Disarm The Descent
Meira væntanlega á næstu dögum/vikum.
Viljið þið skrifa fyrir harðkjarna? (fréttir/greinar/tónleikaupplýsingar/plötudóma ofl) - Einnig vantar ljósmyndir eða video af tónleikum. Endilega hafið samband við valli@dordingull.com
hardkjarni.com
21. júlí 2012 lau. | Skrifa athugasemd
| Valli Nýjar myndir á harðkjarna Á myndasíðu harðkjarna er hægt að finna myndir frá útgáfutónleikum hljómsveitarinnar Beneath (fyrir plötuna Enslaved By Fear) þann 20.júlí 2012. Á síðunni er að finna nýjar myndir af hljómsveitunum Beneath, Angist og Blood Feud. Hér að finna myndir eftir hljómsveitum
hardkjarni.com
23. mars 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Örviðtal - I adapt Það er föstudagur, dordingull á 13 ára afmæli og afmælisgjöf dagsins er örviðtal við Birkir Viðarsson söngvara hljómsveitarinnar I Adapt. Nýlega var tilkynnt að I adapt myndu koma saman aftur til að spila á Eistnaflugi og því tilvalið að hlekkja Birkir niður við nýmálaða spónarplötu og krefjast svara frá kappanum:
Sælir Birkir, hvað að frétta af þér þessa dagana?
Flest fínt, ef ég á að vera alveg hreinskilinn. Mögulega of mikið að gera og helst til mörg járn í litlum eldinum.
Nú tilkynntu aðstandendur Eistnaflugs að hljómsveitin I Adapt væru að koma saman aftur til tónleikahalds á Eistnaflugi, hvernig kom það til?
Stefán er búinn að hjakkast, troða, sparka, rífa og gæla við okkur frá því að við hættum til dagsins í dag um að við spiluðum á hátíðinni hans. Þrátt fyrir að vera auðmjúkir skósveinar þessa manns þá sögðum við alltaf nei enda alvarlegri en andskotinn. En nú lágum við vel við höggi þar sem ég er á landinu, við farnir að sakna hvors annars og við erum flestir ef ekki allir alltaf á Eistnaflugi hvort eð er. Því er heiðurinn okkar að troða upp fyrir austan og fyrir framan allt það góða og kolkexaða fólk sem hátíðina sækir.
Hverjir munu skipa sveitina?
Jobbi, Ingi, Elli, Addi og ég. Þannig vorum við þéttastir og þyngstir og ekkert annað sem kæmi til greina.
Ægir Logn og Baldur Skálmöld verða ekki með okkur. Það er komið á hreint.
Eruð þið eitthvað byrjaðir að æfa?
Við erum ekki byrjaðir að æfa en ég veit að lagalistinn vegna Eistnaflugs heldur Inga vöku. Það er yndislegt. Elli, Jobbi og Addi eru önnum kafnir með Celestine og öðrum verkefnum og enn langt í Neskaupstað, þannig að við erum ekki að stressa okkur. En við ætlum að koma ykkur á óvart með eitthvað sem ég held að fólk sé ekki að reikna með á þessu stigi málsins.
Verða þetta bara einir tónleikar og svo ekkert meira, eða verður eitthvað gert meir í endurkomunni?
Þetta er ekki endurkoma. Meira svona lúxuslamm og afsökun til að ganga of langt einu sinni enn.
Ef þessi "endurkoma" er möguleg... hvað þá með bisund?
Alesund með Sun Kil Monn er fullkomið lag. Tryggð þín við Bisund er það líka. Andri er orðinn of góður á gítar.
Hvað tekur svo við hjá þér um helgina?
Hokkígláp, skrif, lestur, áhlustun margra misgóðra platna, nostur míkróbjórs og hangs með vönduðu liði. Svo verður mamma sótt heim á Sunnudaginn eins og vera ber. Annað væri glapræði.
Eitthvað að lokum?
Annars vorum við að ræsa okkar fyrsta facebook dæmi. Við náðum því aldrei á sínum tíma og þetta er nokkuð skemmtilegt ef fólk vill vera í sambandi við okkur og fá up-to-the-minute upplýsingar og eða heimsókn frá draugum fortíðar. Vonandi lækar það einhver. Fyrst ég er hérna káetu þinni má ég til með að plögga tónlistarbloggsíðu mína http://halifaxcollect.blogspot.com Hún er hress og breið. og svo vil ég bæta við: takk fyrir þetta spjall Valli og þitt gjöfula starf í þágu jaðarþungarokks. Megir þú verða grafinn með lyklaborð og stafræna upptökuvél af einhverju tagi á brjósti
I Adapt facebook:
target=_new>http://www.facebook.com/pages/I-Adapt/191468514297518
7. mars 2012 mið. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndbönd - Wacken Metal Battle 2012 Skellti inn nokkrum myndböndum af þeim sveitum sem hafa gefið mér leyfi sem spiluðu á Wacken Metal Battle hátíðinni núna í ár á Nasa. Meðal hljómsveita sem hægt er að horfa á núna eru Sólstafir, Moldun, Angist, Atrum, Gruesome Glory, Gone Potal og Blood Feud.
Hægt er að skoða myndböndin á TV síðu harðkjarna, eða með því að smella hér TV. Einnig er hægt að nálgast þessar upptökur á youtube.com hardkjarni.com
4. mars 2012 sun. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndir: WMB 2012 Myndir frá Wacken Metal battle á íslandi (Nánar tiltekið á Nasa) frá því laugardagskvöldið 3. mars. Upphitun kvöldsins var í boði BASTARD en svo var komið að hljómsveitunum MEMOIR, MOLDUN, ANGIST, GONE POSTAL, GRUESOME GLORY og BLOOD FUED. Á meðan dómarar fóru yfir atkvæðin sín spilaði hljómsveitin ATRUM, en kvöldin lauk svo með hljómsveitinni SÓLSTÖFUM. Sigurvegarar keppninnar á íslandi fyrir árið 2012 voru GONE POSTAL. Hér að neðan má sjá tengingar yfir á myndir kvöldsins.
24. febrúar 2012 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Nýjar ljósmyndir á myndasíðuna Myndir frá tónleikunum í gærkveldi með bandarísku hljómsveitinni Magrudergrind, upphitun var í höndum íslensku hljómsveitanna Logn og Plastic Gods.
hardkjarni.com
31. janúar 2012 þri. | Skrifa athugasemd
| Valli Breytingar á Harðkjarna Þessa dagana er verið að gera smáveigis breytingar á heimasíðu harðkjarna (hér á hardkjarni.com). Breytingarnar eru aðeins gerðar til að gera síðuna betri á skemmtilegri og þægilegri í notkun. hardkjarni.com
9. september 2011 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Ham - Umfjöllun Rétt í þessu var ég að bæta við nýrri umfjöllun um tónleika hljómsveitarinnar HAM á Nasa.
"Útgáfutónleikum hljómsveitarinnar HAM vegna plötunnar Svik, harms og dauða hafði verið beðið með mikilli eftirvæntingu, enda breiðskífa sem á eftir að sitja í föst í minni íslenskra rokkara um ókomin ár."
2. september 2011 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Nýjir plötudómar Rétt í þessu var ég að bæta við 13 nýjum plötudómum við harðkjarna vefinn. Meðal efnis sem tekið er fyrir að þessu sinni er:
Cave In - White Silence
Harvest - Years of Defiance. Years of Disgust EP
Sick of it all - Based on a True Story
Suicide Silence - The Black Crown
Sepultura - Kairos
As We Fight / The Psyke Project - Ebola Split
Earth Crisis - Neutralize the Threat
Hackneyed - Carnival Cadavre
1956 - Lowtide
S.O.S. - I Owe You Nothing
Jasta - jasta
Caliban - Coverfield EP
Length Of Time / Santa Karla - split hardkjarni.com
21. mars 2011 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Harðkjarni - Myndir Nýjar myndir á harðkjarna vefinn!
Rétt í þessu var ég að bæta við nýjum myndum á myndasíðu harðkjarna. Myndirnar voru teknar á tónleikum þýsku hljómsveitarinnar Heaven Shall Burn í tónleikasal TÞM, tónaslóð 2. Hljómsveitir sem spiluðu þetta kvöldið voru Dysmorphic, Andlát, Endless Dark og að sjálfsögðu Heaven Shall Burn.
Ef þú ert ljósmyndari og hefur gaman af því að taka myndir á tónleikum, afhverju ekki að senda þær á okkur hér í harðkjarna og sjá hvort þær standist þær mögnuðu gæðakröfur sem þarf til að setja myndirnar á vefinn okkar. Núþegar er myndasíða Harðkjarna með myndir af 128 íslenskum hljómsveitum (meira en 11.þúsund myndir) og heilan hellin af erlendum hljómsveitum til viðbótar.
Hægt er að smella á myndirnar hér að neðan til að fara beint á síðurnar sem innihalda nýjustu myndirnar:
dordingull.com
18. mars 2011 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndband á harðkjarnavefinn Rétt í þessu var ég að bæta við myndbandi sem ég tók við á Wacken Metal Battle 5. mars síðkastliðinn, hægt er að skoða þetta myndband og fjöldi annarra áhugaverðara myndbanda á TV síðu harðkjarna eða bara hér að neðan:
dordingull.com
6. mars 2011 sun. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndir Var rétt í þessu að bæta við heilum helling af myndum frá því á Wacken Metal Battle hátíðinni sem haldin var í gærkveldi, laugardaginn 5.mars. Nýjar myndir af: Moldun, Carpe Noctem, Gone Postal, Ophidian I, Grusome Glory, Atrum og Angist. dordingull.com
8. september 2010 mið. | Skrifa athugasemd
| Valli Plötudómar Rétt í þessu var ég að bæta við 12 nýjum plötudómum við harðkjarnavefinn. 11 af þessum dómum tengjast hljómsveitunum HELMET og FAR, en þar sem það vantaði algjörlega upplýsingar um þessar sveitir á síðuna hjá mér ákvað ég að skrifa plötudóm um allar helstu útgáfur sveitanna í heild sinni. Að auki má finna nýjan plötudóm eftir Sigga Pönk um nýjustu breiðskífu hljómsveitarinnar Momentum. dordingull.com
14. febrúar 2010 sun. | Skrifa athugasemd
| Valli Nýjar myndir Rétt í þessu að bæta við nýjum myndum á myndasíðu harðkjarna. Myndirnar voru teknar í gærkveldi á útgáfutónleikum hljómsveitarinnar Beneath í tónleikastal TÞM. Myndirnar eru af eftirfarandi hljómsveitum: Gruesome Glory, Deathmetal Supersquad, Atrum og Beneath.
9. desember 2009 mið. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndir Rétt í þessu var ég að ljúka við að bæta við nýjum myndum á harðkjarna síðuna frá tónleikum hljómsveitarinnar Unrestrained á Íslandi. Hljómsveitin spilaði tvenna tónleika í stuttri dvöl sinni hér á landi (bæði Hinu húsinu (rvk) og í Gamla Bókasafninu (hfn)). Til viðbótar eru einnig myndir af hljómsveitunum Moldun, Death Metal Super Squad, Logn, Manslaughter, Gordon Riots og Klink. Nýjustu myndir síðunnar má finna hér.
12. október 2009 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Nýjar myndir Nokkrar nýjar myndir af hljómsveitunum Retrön og Klink frá því um helgina hafa ratað í ljósmyndasafn harðkjarna. Fyrir áhugasama þá er hægt að skoða þær hér: Klink / Retrön.
Einnig er hægt að skoða nýjustu myndir með því að smella hér: Nýtt á myndasíðunni dordingull.com
25. ágúst 2009 þri. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndir Skellti inn myndum í dag með eftirfarandi hljómsveitum:
Dr. Spock,
Entombed,
Sororicide,
Muck,
Logn,
Manslaughter
Gavin Portland.
13. febrúar 2009 fös. | Skrifa athugasemd
| Valli Árslisti Harðkjarna og töflunnar - 2008 Þriðja árið í röð hefur verið settur saman listi yfir bestu plötur ársins að mati Töflunotenda. Til að gera upp árið 2008 sendu 55 sjálfsskipaðir tónlistarspekúlantar inn lista yfir tíu bestu plöturnar að þeirra mati. Eftir mikla útreikningavinnu, þar sem ströngustu reglum um stærðfræðilegt réttmæti var fylgt eftir, er nú kominn glæsilegur og fjölbreyttur Top 20 listi fyrir árið 2008. Hægt er að skoða listann í heild sinni í safninu hér á harðkjarna, eða með því að smella hér. Umræður um listan er að finna á töflunni hérna. Listinn var settur saman af þeim Jóhannesi Helgasyni (Jói) og Hauki Dór Bragasyni (Kurdor) sem saman ganga undir nafninu Jókur – Listamannafélag Töflunnar. dordingull.com
15. desember 2008 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Uppfræsla á harðkjarna Fullt af nýjum plötudómum komnir á síðuna í viðbót við uppfærslu á tónleikasíðunni.
Nýlega var bætt við nýjum plötudómum, þar á meðal:
Shogun - Charm City
Scott Kelly - The Wake
Entombed - Uprising
Cavalera Conspiracy - Inflikted
Burning skies - Greed.Filth.Abuse.Corruption
Plastic Gods - Quadriplegiac
Ég uppfærði einnig tónleikasíðuna og ný býðst tónleikahöldurum að bæta við smá upplýsingum á síðuna fyrir enskumælandi fólk. Ástæðan fyrir því er að ég hef fengið nokkuð af fyrirspurnum frá fólki sem hefur áhuga að mæta á íslenska þungarokks tónleika, en skilur ekkert af þeim upplýsingum sem koma fram á harðkjarna siðunni, þetta hjálpar þeim að einhvejru leiti og vonast ég til að tónleikahaldarar fylli út nánari upplýsingar um tónleikana þá sem þeir halda.
dordingull.com
24. nóvember 2008 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Tónleikaumfjöllun! Nýverið hélt Ingi Pálsson til köben að sjá hljómsveitina "the Hellacopters" á tónleikum og var drengurinn svo sniðugur safna saman punktum um þessa upplifun, en hægt er að lesa hana í safninu hérna á harðkjarna vefnum. dordingull.com
10. nóvember 2008 mán. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndir - Styrktartónleikar dordingull.com Nýlega var bætt við myndum frá styrktartónleikum dordingull.com sem haldnir voru laugardaginn 8. nóvember. Á tónleikunum spiluðu hljómsveitirnar No Culture, Dormah, Plastic Gods, Shogun, Celestine og Dys. dordingull.com
20. september 2008 lau. | Skrifa athugasemd
| Valli Mikið af nýju efni! Var að bæta við fullt af efni við safnið á harðkjarna, en þar er nú að finna viðal við við Jeff Who úr Orðlaus, nýja grein eftir Sigga Pönk um Öfgatónlist, grein um Grandmother’s Records úr Grapevine, kveðju grein um Grand Rokk úr Grapevine, tónleika umfjöllun frá árinu 2006 um tónleika Mínus og Langa Sela og Skugganna úr Grapevine og að lokum hina frábæru grein mónitors um Spitsign og sakto-bylgjuna miklu.
Einnig bætti ég við myndum frá tónleikum frá því gærkveldi, er hljómsveitirnar Morri, Sleeps like an angry bear, Deathmeal Supersquad og The Best Hardcore Band In The World comu saman í baksal hljómalindar. dordingull.com
6. september 2008 lau. | Skrifa athugasemd
| Valli Myndir Var rétt í þessu að bæta við myndum frá tónleikum hljómsveitarinnar RAEIN nú fyrr í kvöld. Myndir af hljómsveitunum Skít, Gavin Portland, Rökkuró og Raein er nú að finna á ljósmyndasíðu harðkjarna. dordingull.com
4. september 2008 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Nýtt efni á Harðkjarna Ekki nóg með að ég hafi bætt við 40 dálkum eftir hina ýmsu dálkahöfunda harðkjarna, heldur eru komnar 3 viðtöl á síðuna eftir Hauk S. Magnússon. Viðtölin öll voru upprunalega birt í tímaritinu Orðlaus. Viðtölin eru við: Lights on the Highway, Trabant, og fjórar fræknar frænkur þar em talað er um rokk, femínisma, sjálfsfróun og allt þar á milli.
Einnig skellti ég einum plötudóm á netið frá henni Hildi Maral Hamíðsdóttur við plötuna Hvarf-Heim með Sigur Rós. dordingull.com
4. september 2008 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Dálkurinn Ég setti nýlega dálkana í "safnið", en dálkarnir voru skrifaðir af þeim Sigga Pönk, Vésteini Valgarðssyni, Fannari Erni Karlsyni, Hauki Morðingja Alfreðsyni, Karli Jóhanni og Birki Viðari se, oftast er kenndur við hljómveitina I Adapt. Við þessa viðbót hækkar fjöldi greina í safninu upp í 353! Von er á næstunni á viðbótum við safnið, þar á meðal viðtöl við: Will Oldham, Mars Volta, Jeff Who, Lights of the Highway og fleir aog fleira, en flest allt þetta efni var áður birt í tímaritum á borð við Orðlaus, Grapewine, Monitor ofl. dordingull.com
28. ágúst 2008 fim. | Skrifa athugasemd
| Valli Tónleikar í RSS Rétt í þessu var ég að klára viðgerð og endurbætur á RSS straumnum á tónleikasíð harðkjarna. Straumurinn ætti að vera betri fyrir vikið og betur skipulagður! dordingull.com
26. ágúst 2008 þri. | Skrifa athugasemd
| valli Harðkjarni kominn í loftið! Nýr og breyttur harðkjarni kominn í loftið og ætla ég að reyna að halda honum nokkuð ferskum, með bæði uppfærðum fréttum og fleira nokkrum sinnum í viku. Ég þigg að sjálfsögðu alla þá hjálp sem er í boði og ef þú hefur áhuga á hjálpa sendu mér póst info@hardkjarni.com Möguleiki er á að uppfæra fréttir, plötudóma, tónleika upplýsingar og myndir í gegnum stjórnstöð harðkjarna. Öll möguleg hjálp þegin með þökkum!
Nýtt á harðkjarna vefnum (fyrir utan nýja útlitið) er Harðkjarni YV, þar sem hægt er að skoða fullt af myndböndum sem ég og fleiri hafa tekið í gegnum tiðina, hefur þú myndband til að bæta við safnið, sendu mér upplýsingar sem fyrst! ( info@hardkjarni.com ) Annað nýtt er safnið, sem inniheldur allt frá kvikmynda og tónleika umfjöllunum, yfir í greinar og viðtöl og við þetta munu bætast allir þeir dálkar sem á síðunni hafa birst í gegnum tíðina. Myndasíðan hefur gengið í gegnum miklar breytingar og eru nú myndir af um 100 íslenskum rokk sveitum! í viðbót við heilan helling af öðrum myndum. Plötudómarnir og fréttirnar hafa fengið næringu í æð og hafa fengið ágæta uppfræslu af nýjungum. Að lokum vill ég minnast á tónleikasíðuna, en þar er hægt að fá nánari upplýsingar um alla þá helstu tónleika sem á landinu. Hægt er að fá RSS straum af tónleikasíðunni og því lítið mál að fylgjast með tónleikum án þess að hafa fyrir því.
Enn og aftur minni ég á að ég er enn að leita að allri þeirri aðstoð sem mögulegt! dordingull.com
18. ágúst 2008 mán. | Skrifa athugasemd
| valli Viðtöl Bætti við 3 nýjum viðtölum harðkjarna safnið. Sveitirnar sem viðtölin eru við eru Full Blown Chaos, A Life once Lost og Every Time I Die, en allar þessar sveitir eiga það sameiginlegt að gefa efni sitt út á Ferret útgáfunni. dordingull.com
18. ágúst 2008 mán. | Skrifa athugasemd
| valli Myndir Var rétt í þessu að bæta við myndum frá tónleikum sem haldnir voru í Kaffi Rót, 16. ágúst síðastliðinn. Fram komu hljómsveitirnar Dys, Gavin Portland og Tentacles of Doom. Myndir af öllum þessum sveitum er nú hægt að skoða á mynda síðunni. Myndirnar eru teknar af Ægi. dordingull.com