
Í janúar mánuði árið 2010 tók ég nokkur stutt viðtöl við tónlistarmenn til þess að reyna að fríska upp á fréttasíðu harðkjarna. Það var tekið nokkuð vel í þetta og því þetta hluti sem er kominn til að vera. Þá er komið að öðrum hluta örviðtalssafnsins harðkjarna:

Nýverið tók fréttaritari harðkjarna enn eitt örviðtalið og í þetta skiptið við rauðhærðu vélbyssuna, Kristjan B. Heidarsson trommuleikara hljómsveitarinnar Changer. Eins og allir sem fylgjast með íslensku þungarokki vita þá er hljómsveitin ekki dauð úr öllum æðum og því vert að spyrja hvað sé í fréttum:
Hvað er að frétta af Changer þessa dagana?
Af okkur er allt hið besta að frétta. Við stöndum í íbúðakaupum, barnauppeldi, sumarbústaðaferðum, almennum hressleika og vinnu alla daga vikunnar, bara svona eins og allir. Og svo erum við á fullu að æfa líka, auðvitað.
Hvernig er ný meðlimaskipan sveitarinnar?
Það veit ég ekki! Þetta breytist oftar en ég get fylgst með... Síðast þegar ég gáði var hún svona: Gamli rauðskeggur á bak við trommufjallið, Addi (Moldun, Palmprint In Blood) á bassa, Höddi kominn aftur á gítarinn, Rob (Cinis, Abused Majesty) með hinn gítarinn, og svo Halli (Elexír, Dormah, Munnriður) sem rymur og gargar.
Hvenær er von á næstu breiðskífu Changer og hvenær má búast við sveitinni á tónleikum næst?
Við erum í þessum töluðum orðum að láta mixa Darkling, sem er nafnið á plötunni. Okkur langaði mikið að geta gefið hana út í febrúar, en það tefst líklega eitthvað. Við ætlum svo að spila á stórum og svolítið öðruvísi tónleikum seinni partinn í febrúar. Bæði all ages og fyrir drykkjurafta.
Segðu okkur nánar frá Darkling?
Darkling er platan sem hefði réttilega átt að koma á eftir January 109. Ef upprunalega planið hefði gengið eftir hefði hún komið út 2001. Aðstæður breyttust samt þannig að ákveðið var að setja plötuna í langvarandi saltpækil. Svo þegar ég setti bandið aftur af stað í hittifyrra ákvað ég strax að klára þetta verkefni frá áður en nokkuð annað væri gert. Strákarnir eru svo búnir að setja sitt mark á lögin, og ég veit að þau hefðu aldrei getað hljómað svona vel fyrir níu árum síðan. Þrátt fyrir langa fæðingu er 2010 rétta árið fyrir útgáfu á Darkling.
Hvað tekur nú við hjá Changer mönnum?
Þessa dagana stöndum við í ströngum æfingum fyrir Bretlandstúr sem við förum á í lok febrúar. Þetta er í fyrsta skipti sem við spilum í Bretlandi, og við hlökkum mikið til. Svo mun Darkling koma út eftir það og verður fylgt eftir í sumar. Svo erum við þegar byrjaðir að semja efni fyrir næstu plötu. 2010 verður mjög spennandi og skemmtilegt fyrir Changer.
Changer is dead. Long live Changer!

Trommuleikari hinar goðsagnakendu dauðarokksveitar sororicide, Unnar Bjarnason, sat fyrir svörum fréttaritara harðkjarnavefsins, og úr því varð til enn eitt örviðtalið:
Hvernig tókst til með endurkomu Sororicide á árinu sem leið?
Miðað við þann tíma sem við höfðum til að undirbúa okkur þá held ég að þetta hafi varla getað heppnast miki betur. Við vorum allir mjög ánægðir með þetta og einnig valdi Morgunblaðið tónleikana sem tónleika ársins 2009 sem er mikið hrós fyrir okkur.
Verður eitthvað framhald á tónleikastarfsemi með sveitinni?
Já, en hvenær það verður er óvíst. Ég reikna fastlega með að við spilum eitthvað næsta sumar og/eða næsta haust.
Hvað með tónleikahald, nú hefur þú séð um að koma hljómsveitum á borð við Entombed til landins, er möguleiki að framhald verði í þeim geira hjá þér?
Alveg örugglega. Ég er ekki með neitt planað eins og staðan er núna enda er þetta soldið erfiður bransi í þessu árferði þar sem fluggjöldin eru rosalega há og erfitt að fá kostendur til að styrkja svona tónleika, sérstaklega tónlist í þessum geira.
Hverjar eru áætlanir ársins?
Áætlanir Sororicide er að taka upp nýtt efni og gefa út vonandi stóra plötu seinna á þessu ári. Við höfum nú þegar samið grunn af nýjum lögum sem lofa mjög góðu að mínu mati. Þannig að þetta verður spennandi ár hjá hljómsveitinni.

Sigurjón Kjartansson, HAM, varð við áskorun fréttaritara Harðkjarna vefsins og svaraði nokkrum spurningum í örviðtalshorni harðkjarna. Eins og flestir vita þá hefur Sigurjón gert mun meira en að spila þungarokk fyrir framan sveitta karlmenn í gegnum árin, heldur er maðurinn einn fremsti handritshöfundur lansins í viðbót við að vera annar helmingur tvíhöfða.
Hvað er að frétta af HAM mönnum þessa dagana, er sveitin enn á lífi?
-Allt gott að frétta af HAM. Sjaldan verið meira á lífi.
Nú hefur sveitin spilað lög sem ekki hafa áður verið gefin út, hvenær verður sveitin tilbúin með nægilega mörg lög til að taka upp breiðskífu og við hverju má maður búast við af nýju efni sveitarinnar?
-Við stefnum á að fara í stúdíó nú í byrjun árs og sjáum til hvað gerist. Kannski verðum við komnir með nógu mörg lög um fjögurleytið. Svo er það líka spurning hvað eru nógu mörg lög?
Er einhver möguleiki að sveitin sendi frá sér breiðskífu núna í ár (já eða þröngskífu (EP))?
-Já það er möguleiki. Okkur langar til þess.
Er einhver von á að sveitin spili á einhverjum sérvöldum tónleikum núna í ár
-Það er von. Það væri gaman. Við stefnum að því.
Er einhver von á því að Olympía verði með comback á næstunni?
-Engin von. HAM er málið.
Nú hefur þú verið að gera það gott sem handritshöfundur hvernig leiddist þú í það starf?
-Ég leiddist ekkert út í það. Ég valdi mér það og barðist fyrir því. Mér fannst framleiðsla á leiknu efni fyrir sjónvarp vera léleg og því vildi ég gera eitthvað í því. Þetta snýst nefnilega ekki bara um að fá peninga frá menntamálaráðuneytinu, heldur líka um að kunna og geta. Íslenska sjónvarpsvorið er staðreynd.
og að lokum hvernig ganga nýju tvíhöfðaþættirnir og hvenær eru þeir á dagskrá?
-Þeir ganga vel og eru á dagskrá á laugardagsmorgnum frá 9 – 12 á Kananum.
Whats happening with Eyehategod these days?.
Lots of gigs and travelling lately and I'm glad. Good to meet the people and have a drink or twelve.
I see you guys are planning a tour through Europe, why not stop in Iceland also?
Funny you say that because its a possibility. We are talking with our booking agent about Iceland. I would LOVE to go to your country, even if it was just by myself but obviously with EHG would be ace.
You have been known for more work than just Eyehategod, what other projects are you also involved with?
Alot of stuff. Arson Anthem will have our second release out soon - 17 fast furious hardcore punk tunes with me singing, Phil Anselmo on guitar and Hank III on drums, The Guilt Of... is an electronics/noise duo I have and are doing some splits this year including one with Merzbow, Outlaw Order is doing Roadburn this year, my book Cancer as a Social Activity in its second print and I have more books written Im editing, I have a spoken word noise 7" almost sold out on Chrome Peeler records and god knows what else....
What is the difference between Outlaw Order and Eyehategod?
The music is totally different, of course it gets comparisons because of the members but I believe 00% is faster and has lead guitar riffs and no feedback. The vibe is just different. People should just get the records and judge themselves. The 00% LP is called Dragging Down the Enforcer. Get it people.
Is there a change that we will see a new Eyehategod album anytime soon?
Hopefully very soon, but I'm tired of this question. Its up to Jimmy and them to write enough songs. I would go in the studio tomorrow if they were ready. We do have new songs, but we need a bunch more.
What is the best way for a kid in Iceland to get your poetry and music?
Well there are a variety of websites and places to get stuff, but you can go to www.thehousecorerecords.com for some things, like Arson Anthem and my book. It depends on what they want as to where you can go. Some things are available directly form me so write me at my Myspace page at www.myspace.com/nolanine and ask. I try and write everyone back. I'm very interested
in the punk/metal scene in Iceland, really any underground music at all thats from there.
Whats next on the agenda for you Mike?
Touring and writing. Touring and writing.
Enn bætist við örviðtala búnkann, og nú er það Ingólfur Ólafsson, úr Severed Crotch svaraði nokkrum spurningum fréttaritara harðkjarnafrétta:
Hvernig gengu upptökur á tilvonandi breiðsífu ykkar og hver er merkingin á bakvið titilinn The Nature of entropy?
Platan er næstum því tilbúin, það er bara smá sem við þurfum að bæta við áður en hún fer svo í mix og master. Titillin á plötunni er einhverskonar lýsing á bæði tónlistina sjálfa sem og innihald textana. Entropy merkir óreiða og er oft notað til að lýsa vermibreytingum(sem verður þá einhverskonar myndlíking fyrir tónlistina) sem og rýrnun og eyðing í einhverju umhverfi eða samfélagi(sem á þá við textana). hehe vona að þetta meikar sens
Voruð þið ekki að leita að vinna útlit plötunnar, hvernig gekk það fyrir sig?
Jú okkur vantaði listamann til að gera cover o.fl. og í kjölfar þráðarins á töflunni voru margir sem höfðu samband og við erum eins og er að skoða hvaða hugmyndir eru í boði
Hvað er langt síðan að sveitin hefur spilað á tónleikum og hvenær verða næstu tónleikar sveitarinnar?
Seinast þegar við spiluðum á tónleikum var held ég á Halloween tónleikunum á Grand Rokk í fyrra. Næst á dagsskrá eru tónleikar sem við erum að skipuleggja 6. febrúar ásamt góðum gestum.
Hvað er plan ársins fyrir sveitina?
Fyrst og fremst að koma breiðskífunni út og fylgja henni eftir. Eins og er eru nokkur staðfest gigg sem verða aðeins seinna á árinu en það á eftir að fara í að skipuleggja túr o.fl. Svo erum við að vinna efni fyrir næstu útgáfu sem gengur bara mjög vel og hratt fyrir sig, þannig að vonandi getum við líka byrjað að skipuleggja næsta stúdióferð hjá Klobbanum!
Áhugi á sýningu myndarinnar Until the Light takes us hefur aukis til muna upp á síðkastliðið, því sá harðkjarni tækifærið að spyrja fólkið á bakvið myndina nokkrar spurninar sem hægt er að lesa hérna að neðan, í hinu sívinsæla örviðtalshorni fréttasíðunnar:
Where did you get the idea for this documentary?
Aaron: Well, it was simple really. Audrey and I were into Norwegian black metal, and we both wanted to see a documentary about it, but there wasn't one. We were both working in film and were going into pre-production on another film and we decided to look into the feasibility of doing the documentary on black metal. Eventually we just decided to go for it.
How was it getting a inside look into world of black metal?
Aaron: We lived there for two years shooting the film so it was a very long look! I have to say it was a bit overwhelming. But it was a very rewarding experience. I love Scandinavia and we made a lot of friends. It was a lot of work though!
Readers of my website would like to see this film on the big screen, how can we make sure that it happens?
Aaron: There is a way. Somebody should start a "Bring Until The Light Takes Us to _________" page on Facebook, get a lot of people to join, and take it to a theater to show them that there's an audience for the film there. People starting these facebook pages have been responsible for bringing the film to theaters on three continents. If some people reading this want to start a page though, make sure to get everybody onto one page and not start several competing pages. (íslensku síðuna tengdu þessu má finna hér)
How have the theater screening been received through out the world?
Aaron: It's going really well. Audrey and I have done Q&A's at as many of the premieres that we could make it too and audiences seem to really love it.
When will we see a DVD release and will it feature any extras?
Aaron: We're still working on the theatrical run right now, but the DVD/Blu-Ray will be out later in the year and yes it will have a lot of extras. Over three hours of them (twice the length of the movie)!
What is next on the agenda?
Aaron: Other than finishing off the special features, Audrey and I are working on a new suspence film (not a documentary) called (at least for now) The Living Day. It takes place on a commune in Vermont.