Podcast - Itunes

Alla fimmtudaga frá klukkan 23:00

Þín skrif á harðkjarna?
Vilt þú taka þátt í uppbyggingu Harðkjarna vefsins? Við erum ávalt að leita að góðu fólki til að skrifa greinar, taka viðtöl, skrifa tónlistar eða kvikmynda umfjallanir. Ef þú hefur áhuga, endilega hafðu samband við okkur og um leið sendu okkur sýnishorn af þínum skrifum.

Hægt er að senda inn greinar, viðtöl, kvikmynda eða tónleika umfjallanir hingað:
greinar@hardkjarni.com

Leit í safninu:

Nýjast:
Í safninu eru: 376 greinar/viðtöl...

Athugið
Dagsetningar og röðun á öllum þeim greinum, viðtölum og öðru því sem birtist á "safn" síðunni er að öllum líkendum röng, engar dagsetningar voru á upprunalegum gögnum og því engin dagsetning til að miða við þegar efnið var sett á ný á síðuna.

 

 

Sólstafir - Svartir Sandar

Sólstafir

Svartir Sandar Útgáfutónleikar - 9. febrúar 2012 - Gamla bíó

Hljómsveitin Sólstafir sendi frá sér plötuna Svartir Sandar í miðjum október á síðasta ári og var það engin venjuleg plata, tvöfalt meistarastykki með öllu tilheyrandi. Það var því einkar ánægjulegt þegar fréttist um að sveitin ætlaði að halda heljarinnar útgáfutónleika þar sem áætlað að var að spila plötuna í heild sinni.

Sólstafir - Svartir SandarDagurinn er fimmtudagurinn 9. febrúar 2012 og ég er á leiðinni ásamt eiginkonunni á tónleika í Gamla Bíó (Operunni). Það er ekki oft sem ég get farið á þungarokkstónleika á fimmtudegi, hvað þá klukkan átta, en það kallast víst að vera fullorðinn. Það var sérstakt að koma í Gamla bíó og sjá allt þetta fólk, enda uppselt og húsið fullt af þungarokkurum. Hringt var inn í sæti og hópur þungarokkara settust niður með bækling þar sem hægt var að kynna sér dagskrá kvöldsins.  Það er augljóst strax í upphafi að það er mikið búið að leggja í þetta kvöld.

Hljómsveitin mætti á sviðið á góðum tíma og fór beint í fyrsta lag kvöldsins. Lagið ljós í stormi er um leið upphafslag Andvara, fyrri plötu Svartra Sanda. Þessi byrjun gaf strax sýnishornið af því sem kvöldið í heild sinni myndi bjóða upp á, víddin og krafturinn í viðbót við hreina skemmtun. Þegar lagið fjara fór í gang var augljóst að hér væri eitt að meistarastykkjum sveitarinnar í gangi. Bakraddir, píanó komin á svið og lagið sem flestir aðdáendur sveitarinnar þekkja hvað best (þökk sé mögnuðu myndbandi). Þín orð og sjúki skugginn viðhéldu ánægjunn á meðan Æra kom gæsahúðinni í ganga hjá mér. Mögnuð útsetning lagsins þar sem Halldór Á Björnsson fór á kostum á píanóinu á sama tíma og Addi söngvari kreysti úr sér sálin í magnþrungnum söng, síðasta lag fyrir hlé var svo Kukl sem var ansi skemmtilegt sökum skemmtilegarar útsetningar sveitarinnar.

Það er skítið að sitja í sætum í fínu leikhúsi á meðan maður horfir á þungarokkhljómsveit spila sína bestu tónleika. Það var samt gott að fá smá hlé til að teigja sig og spjalla við aðra rokkara um tónleikana.

Sólstafir - Svartir Sandar

Fyrsta lag eftir hlé var Melrakkablús (fyrsta lagið á Golu, seinni plötu Svartra Sanda) þar sem einn merkilegasti saxafón sólo síðari tíma var fluttur í beinni, þvílíkt og annað eins. Ég hef sjaldan verið álitinn mikill aðdáandi saxafónsins, en Steinar Sigurðarson breytti því með gjörsamlega geðtrufluðum blásturssóló.  Eitt af áhrifameiri lögum Svartra sanda, Draumfari var næst á dagskrá og fannst mér sveitin njóta sín einstaklega vel á sviðinu við þennan flutning. Hin samtengdu verk  Stinnigskaldi og Stormfari hófust með áberandi sterkri rödd Gerðar G. Bjarklind. Felstir íslendingar þekkjar rödd Gerðar, enda ein af vinsælustu útvarsröddum landsins síðustu áratugi. Það hefði fullkomnað tónleikana ef Gerður hefði sjálf mætt á svæðið, en Addi (söngur/gítar) tilkynnti það að hún væri stödd erlendis þetta kvöldið. Titillag plötunnar sjálfar, Svartir Sandar, voru eitt af sterkari lögum kvöldsins, enda engu til sparað með flutninginn. Kórfélagar úr Hljómeyki undir stjórn Gunnar Ben í viðbót við Jón Björn Brain Police mann tilbúinn fyrir framan Gongið. Þessarri tóleikaveislu lauk svo með því að Hallur Ingólfs og Birgir Jónsson úr hljómsveitinni XIII komu á svið (ásamt nokkrum öðrum) og spiluðu með sveitinni Djáknann. Magnþrungnum endi á þessum einstaka tónlistarviðburði.

Svavar bassaleikari hvatti svo fólkið í salnum klappa sveitina upp þar sem hann var rétt byrjaður að hitna fyrir kvöldið, salurinn var á sama máli og restin af sveitinni kom svo aftur á við og tóku lagið Köld af samnefndri plötu, en ég held að það hafi fullkomnað kvöldið í heild sinni.

Þessi kvöldstund var í einu orði sagt, mögnuð. Sólstafir fóru á nýjar hæðir þetta kvöldið. Þessir tónleikar hafa sett nýjan staðal um gæði á íslensku þungarokki um ókomna tíð og bara von um að sveitin geti haldið svipaða tónleika aftur þá fyrir köld og jafnvel komandi skífur.


Eitt má minnast á að lokum, að þessir tónleikar höfðu auðvitað alveg rosaleg jákvæð áhrif á mig, en ég hafði aðalega hlustað á fyrri plötuna (Andvara, sökum þess að uppáhaldslögin mín (Fjara og Æra) eru á þeim hluta plötunnar, en í dag hefur Gola fengið mun meiri hlustun. Það er því væntanlega gott að maður vilji hlusta meira á hljómsveitina þrátt fyrir að hafa verið á 2 tíma tónleikum með sveitinni. 

 

Sólstafir - Svartir Sandar

Myndir: Gunnar B. Guðbjörnsson (Gussi SIR)

 


Valli
10/02/2012

Twitter Post to MySpace!



Ef þù viltu skrá skilaboð við þessa grein?
Smelltu þá hèr

r